Lindargata 37, 101 Reykjavík (Miðbær)
99.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
90 m2
99.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2010
Brunabótamat
56.450.000
Fasteignamat
92.250.000

Heimili fasteignasala kynnir í einkasölu: Glæsileg 3ja herbergja íbúð á sjöttu hæð í Skuggahverfinu, þ.e. við Lindargötu 37.  Íbúðin er með fallegu útsýnir af stórum svölum til suðurs yfir borgina og að Hallgrímskirkju. Merkt stæði í bílakjallara fylgir.  Íbúðin getur verið laus 1. mars 2026. 

Bókið skoðun, allar frekar upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson fasteignasali, [email protected] 


Um er að ræða vandaða íbúð á einum vinsælasta stað borgarinnar. Stutt er í iðandi mannlíf, alla þjónustu; verslanir, veitingastaði og afþreyingu af ýmsu tagi, hvort sem horft er til miðborgarinnar, Grandagarðs, Skólavörðuholtsins og víðar.
Skipulag eignarinnar: Anddyri, hol, stofa/borðstofa, eldhús er opið við borðstofuna, baðherbergi, tvö svefnherbergi og þvottahús. Úr stofunni er gengið út á 9 fm suðursvalir. Íbúðin snýr til suðurs og austurs. 


Komið er inn á anddyri með fataskápum.  Bjart alrými með parketi á gólfi, gólfsíðir gluggar og falleg birta. Í rýminu er borðstofa og stofa, úr stofunni er gengið út á stórar svalir í suður með fallegu útsýni yfir borgina.  Eldhúsið er opið við stofuna, þar er fallegt hvít innréttingu og skemmtilegur útskotsgluggi sem gefur eldhúsinu fallega birtu og útsýni. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, innrétting og baðkar með sturtu yfir. Rúmgott hjónaherbergi með stórum fataskápum. Herbergi með parketi. Þvottahús er með innréttingu og gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara. Gólfsíðir gluggar eru í íbúðinni og gólfhiti. Lofthæð er um 2,7 metrar, nema þar sem loft eru niðurtekin.
Sérgeymsla er í mjög snyrtilegri sameign.  Merkt stæði í bílakjallara þar sem hægt er að setja upp rafhleðslustöð. 

Allar frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson fasteignasali, [email protected] 


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.