Rjúpufell 46, 111 Reykjavík (Efra Breiðholt)
67.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
4 herb.
131 m2
67.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1974
Brunabótamat
57.220.000
Fasteignamat
62.650.000
Opið hús: 08. apríl 2025 kl. 17:15 til 17:45.

Heimili fasteignasala kynnir vel skipulagða fjögurra herbergja íbúð á þriðju hæð með bílskúr við Rjúpufell 46 í Reykjavík. Eignin er skráð 131,3 m2 að stærð, þar af íbúðarrými 105,9 m2, geymsla (merkt 0105) 4,5 m2, og skiptist í anddyri/hol, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús auk 20,9 m2 bílskúrs (merktur 0103). 

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., [email protected]

Nánari lýsing.

Anddyri: rúmgott með fataskáp. Á gólfi er parket. 
Stofa: björt með stórum gluggum, parketi á gólfi og útgengi á flísalagðar svalir sem eru með svalalokun.
Eldhús: flísar á gólfi, hvít L-laga innrétting, mikið skápapláss og góð vinnuaðstaða. 
Þvottahús inn af eldhúsi, dúkur á gólfi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergi: parket á gólfi, tvöfaldur fataskápur innan herbergis og gólfsíður gluggi. 
Herbergi 2: parket á gólfi og fataskápur innan herbergis.
Herbergi 3: parket á gólfi og fataskápur innan herbergis.
Baðherbergi: ágæt innrétting og baðkar með sturtuhaus. Á gólfi og á veggjum eru flísar.
Bílskúr: snyrtilegur með flísalögðu gólfi, nýlegu vinnuborði, skolvask, lokuðum geymsluskáp, tengi fyrir heitt og kalt vatn, innkeyrsluhurð með rafmagnsopnun og rúmgott geymsluloft.
Í sameign er sameigninleg hjóla- og vagnageymsla sem og sérgeymsla íbúðar. 

Skv. upplýsingum frá seljendum var þak húseignarinnar endurnýjað að hluta (járn, pappi og timbur eftir þörfum) sumarið 2024 og árið 2022 var þak og þakkantur bílskúralengjunnar endurnýjaður. Þá hefur rafmagnstafla fyrir stigagang einnig verið endurnýjuð.

Í nærumhverfi er Leikskólinn Ösp, Fellaskóli og íþróttasvæði Leiknis og skammt frá eru fallegar gönguleiðir í Víðidal og meðfram Elliðaá.

Vel skipulögð eign í grónu hverfi þar sem stutt er í alla þjónustu og fallega náttúru.

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., [email protected]


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.