Hraunbær 196, 110 Reykjavík (Árbær)
65.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
4 herb.
107 m2
65.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1967
Brunabótamat
49.350.000
Fasteignamat
61.300.000

*** NÝ Á SKRÁ  - LAUS FLJÓTLEGA ***

Heimili fasteignasala og Ragnar Þorgeirsson, löggiltur fasteignasali sími 774-7373, kynna góða 107 fermetra, fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð efst í Hraunbænum.
Á nokkru árabili hafa eldhúsinnrétting og -tæki og baðherbergi verið endurnýjuð með smekklegum hætti. Skipt hefur verið um þakjárn og -pappa auk þess sem húsið hefur verið klætt utan að hluta.  Í bakgarði er nýbúið að endurnýja leiksvæði með skemmtilegum hætti og setja hitalagnir í gangstíga.  


Komið er inn í flísalagt hol. Nýleg hurð og mynd dyrasími.
Stór og björt stofa og borðstofa með parketi og gengið út á flísalagðar vestursvalir sem snúa út á baklóðina, sem öll er endurnýjuð.
Eldhús er með flísum á gólfi og stórri inréttingu með miklu skúffuplássi og tveimur góðum búrskápum og er annar þeirra með útdraganlegum hilluskúffum. Borðkrókur við glugga.
Herbergisgangur er flísalagður og þar er fataskápur.
Stórt hjónaherbergi með parketi og góðum skápum.
Tvö barnaherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, vaskur í innréttingu, sturta með glerskilrúmi (e. walk-in shower) og gluggi.  Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Á jarðhæð er sérgeymsla íbúðar, sameignleg hjóla- og vagnageymsla og þvottahús með þvottavél og þurrkara í eigu húsfélagsins.
Merkt bílastæði við húsið og sérstaklega falleg baklóð með trjágróðri, sparkvelli, körfu og leiksvæði fyrir börn.

Stutt er í leikskóla, skóla, verslanir og fjölbreytta þjónustu - og vinsælar gönguleiðir í Elliðaárdal og við Rauðavatn.
Aðeins 7 mínútna gangur í Árbæjar sundlaugina sem er mjög skemmtileg laug og barnvæn.

nari upplýsingar veitir Ragnar Þorgeirsson, löggiltur fasteignasali í síma 774 7373 eða [email protected]


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.