Suðurhella 12 íb. 501, 221 Hafnarfjörður
81.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
4 herb.
123 m2
81.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
2024
Brunabótamat
0
Fasteignamat
5.720.000

Heimili fasteignasala kynnir til sölu nýjar og glæsilegar fullbúnar tveggja, þriggja og fjögurra herbergja íbúðir í fimm hæða staðsteyptu álklæddu lyftuhúsi við Suðurhellu 12 í Hafnarfirði. Íbúðirnar afhendast við undirritun kaupsamnings,  fullbúnar með innréttingum og skápum frá Axis, gólfefni frá Birgisson og frágenginni sameiginlegri lóð með leiktækjum á bak við hús. 

Fyrir nánari upplýsingar og skoðun hafið samband við Önnu Sigurðardóttur, lgf. s. 898-2017, [email protected]

Nánari lýsing íbúðar 501. 
Stórglæsileg og vel skipulögð 4ra. herbergja 123,1 fm íbúð á 5. hæð.  Komið er inn í rúmgott anddyri. Stórt og bjart opið rými sem er eldhús, borðstofa og stofa með harðparketi.  Sérsmíðuð eldhúsinnrétting frá Axis og útgengi á svalir úr stofu. Rúmgott hjónaherbergi og tvö barnaaherbergi. Í öllum svefnherbergjum eru fataskápar og harðparketi á gólfum. Baðherbergi er með sérsmíðaðri innréttingu frá Axis, flísalögðum sturtuklefa, vegghengdu WC og handklæðaofni á vegg. Á gólfi og á veggjum við sturtu eru flísar. Innan íbúðar er þvottahús í sér rými, loftskiptikerfi auk rúmgóðrar sérgeymslu í kjallara. 

Húsið stendur á horni Suðurhellu og  Krísuvíkurvegar og markast af ósnortnu landi til suðurs og vesturs þar sem íbúðum á jarðhæð fylgja afmarkaðir sérafnotafletir og íbúar í íbúðum efri hæða geta notið fallegs útsýnis til fjalla. Gróðursett verður með fram allri lóðinni með lágvöxnum runnum, einnig verða ker á lóðinni með sígrænum plöntum. 

Falleg, rúmgóð og vel skipulögð íbúð í nýju lyftuhúsi í nálægð við fallega náttúru.  
 
Nánari upplýsingar veita:
Anna Sigurðardóttir lgf., [email protected], 898-2017  
Gunnlaugur A. Björnsson lgf. [email protected], 617-5161 
Brynjólfur Snorrason lgf., [email protected], 896-2953 
Sigríður Lind Eyglóardóttir lgf., [email protected], 899-4703 
 


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.