Bárugata 38, 101 Reykjavík (Miðbær)
89.900.000 Kr.
Hæð/ Hæð í þríbýlishúsi
4 herb.
93 m2
89.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1929
Brunabótamat
39.950.000
Fasteignamat
69.600.000

Heimili fasteignasala kynnir til sölu bjarta og fallega hæð í reisulegu húsi byggt árið 1929 í 101 Reykjavík. Eignin er skráð 93,2 m2 að stærð og skiptist í anddyri, stofu, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi (möguleiki á að bæta því þriðja við), auk geymslu í kjallara og sameiginlegs þvottaherbergis. Falleg eign í vinsælu hverfi sem vert er að skoða.

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., [email protected]


Nánari lýsing.
Komið inn í flísalagða forstofu sem er sameiginleg með eign á efri hæð og gengið inn í anddyri eignar, þar sem er fatahengi. Stofa og eldhús eru í opnu og björtu rými þar sem eru gluggar á þrjá vegu og parket á gólfi. Eldhús er með miklu skápaplássi og góðri vinnuaðstöðu og með borðplötu úr Marmara. Svefnherbergi eignar eru í dag tvö og er annað með góðum fataskápum. Samkvæmt teikningum var hitt herbergið upphafleg tvö rými sem býður upp á möguleika á að fjölga svefnherbergjum eignar í þrjú. Baðherbergi er með fallegri innréttingu, glugga með opnanlegu fagi og baðkari með sturtu. Á gólfi og á veggjum þar eru flísar. Í kjallara er sér geymsla eignar og sameiginlegt þvottahús.  Loks fylgir eign fallegur sameiginlegur garður og sameiginlegt bílastæði.

Falleg og vel skipulögð eign á vinsælum stað þar sem stutt er í margvíslega þjónustu og miðbæ Reykjavíkur.
 
Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., S: 896-2953, [email protected]
 


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.