Háteigsvegur 25, 105 Reykjavík (Austurbær)
63.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjórbýli
3 herb.
80 m2
63.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1942
Brunabótamat
36.150.000
Fasteignamat
54.050.000

Heimili fasteignasala kynni til sölu bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð með auka herbergi í kjallara við Háteigsveg í 105 Reykjavík. Eignin er skráð 80,6 fm að stærð, þar af íbúðarrými 60,7 fm, herbergi í kjallara 16,7 fm og geymsla 3,2 fm, og skiptist í forstofu, baðherbergi, tvö svefnherbergi, stofu og eldhús auk herbergis í kjallara sem býður upp á útleigumöguleika. Í kjallara er einnig sér geymsla íbúðar og sameiginlegt þvottahús og á bak við hús er sameiginlegur garður með verönd. 
Eign með mikla möguleika á vinsælum stað í Reykjavík. 


Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., s:896-2953, [email protected] 

Nánari lýsing.
Anddyri:
sameiginlegt með íbúð á efri hæð. 
Forstofa: opið með fataskáp, parket á gólfi.
Borð- og setustofa: rúmgóð og björt, gluggi til vesturs, parket á gólfi og frá stofu er opið inn í eldhús.
Eldhús: nýleg innrétting, gott skápapláss og góð vinnuaðstaða. Á gólfi er parket og í eldhúsi eru gluggar á tvo vegu.
Svefnherbergi: er þar sem eldhús var áður. Á gólfi er parket og í herbergi er gluggi með opnanlegu fagi.
Hjónaherbergi: með stórum fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi: flísar á gólfi og á veggjum, gluggi með opnanlegu fagi, vegghengt WC og flísalagður sturtuklefi.

Í kjallara er sérgeymsla íbúðar (merkt 0007), sameiginlegt þvotta- og þurrkherbergi auk 16,7 fm herbergis (merkt 0004) sem hefur verið nýtt til útleigu og er með eldhúsinnréttingu og aðgengi að baðherbergi og sturtu. Loks fylgir eign sameiginlegur garður þar sem er skjólveggur og timburverönd. 

Skv. upplýsingum frá seljanda var eldhús endurnýjað árið 2020 og árið 2023 var þak húseignar endurnýjað að hluta árið (járn, pappi, rennur og timbur þar sem þurfti). 

Vel skipulögð eign með möguleika á leigutekjum miðsvæðis í Reykjavík þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. 

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., s:896-2953, [email protected] 


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.