Breiðvangur 28, 220 Hafnarfjörður
81.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
4 herb.
166 m2
81.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1974
Brunabótamat
69.970.000
Fasteignamat
79.650.000

Heimili fasteignasala kynnir bjarta og fallega 4 herbergja íbúð með bílskúr við Breiðvang 28, Hafnarfirði.  Eignin er á efstu hæð og er skráð samtals 166,8 fm, þar af er bílskúr 24 fm.
Íbúðin skiptist í stofu, borðstofu, eldhús, þvottahús, 3 svefnherbergi, og baðherbergi. Bílskúr og 2 góðar sérgeymslur í sameign á jarðhæð.


Komið er inn í rúmgott og bjart hol. Á vinstri hönd er flísalagt baðherbergi, með góðri innréttingu, baðkar og sturtuklefi.
Eldhús með tveimur gluggum,  nýlegri hvítri innréttingu, bakarofn í vinnuhæð, helluborð og vifta, tengi fyrir uppþvottavél. Tveir gluggar, góður borðkrókur.  Inn af eldhúsi er flísalagt þvottahús með góðu geymsluplássi. 
Stofa og borðstofa eru í björtu og rúmgóðu rými. Tveir stórir gluggar og útgengt út á svalir með fallegu útsýni.  Parket á gólfi. 
Á svefnherbergisgangi eru 3 herbergi. Hjónaherbergi sem er rúmgott með góðum fataskápum, parket á gólfi. Barnaherbergi eru tvö, dúkur á gólfi.
Tvær rúmgóðar sérgeymslur eru í sameign á jarðhæð önnur 13,6 fm og hin 7,9 fm. 
Sameiginlega hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Bílskúr með rafmagni og heitu og köldu vatni.

Framkvæmdir 2020-2024
Verið er að ljúka við viðgerðir á þaki, sem var yfirfarið og þakjárn endurnýjað.
Nýlega hafa gluggar og gler verið endurnýjaðir í húsinu þar sem þurfti.
Húsið sprunguviðgert og málað.

Þetta er falleg og björt fjölskylduíbúð með góðu útsýni í Norðurbæ Hafnarfjarðar. Skóli, leikskóli og verslanir í göngufæri.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sigríður Lind Eyglóardóttir löggiltur fasteignasali. [email protected] / 8994703.


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.