Fagrahella 13, 800 Selfoss
83.500.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
4 herb.
151 m2
83.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2009
Brunabótamat
75.950.000
Fasteignamat
78.400.000
Opið hús: 24. október 2024 kl. 17:00 til 17:30.

*** NÝTT Á SKRÁ ***

Heimili fasteignasala og Ragnar Þorgeirsson, löggiltur fasteignasali sími 774-7373, kynna einstaklega bjart og fallegt 4-5 herbergja endaraðhús innst í botnlanga við Fögruhellu á Selfossi. Stofa og eldhús í fallegu alrými með innfelldri lýsingu og þaðan gengð út á sólríkan pall.  Fjögur svefnherbergi og bílskúr.  Falleg aðkoma er að húsinu og hellulögð innkeyrsla.

Komið inn í forstofu og gengið inn í rúmgott forstofuherbergi. Eldhús með ljósri innréttingu og viðar borðplötu, bakaraofn í vinnuhæð, nýlegt spanhelluborð og smart háfur.  Stofa og -borðstofa með gluggum á tvo vegu. Á svefnherbergisgangi er hjónaherbergi með góðu skápaplássi, barnaherbergi, baðherbergi með innréttingu, upphengdu salerni, hornbaðkari og sturtuklefa og þvottahús með innréttingu. Úr þvottahúsi er inn í bílskúrinn og inn af honum verið komið fyrir fjórða svefnherberginu. Golfhiti er í húsinu.

Gólfefni hússins er parket nema á forstofu og vottrýmum, bílskúr og herbergi inn af honum, þar sem eru flísar.

Virkilega skemmtileg eign og vel staðsett við grænt svæði og göngustíg innst í botnlanga.
Nánari upplýsingar veitir Ragnar Þorgeirsson, löggiltur fasteignasali í síma 774 7373 eða [email protected]


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.