Suðurhella 14 íb. 403, 221 Hafnarfjörður
58.000.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
2 herb.
76 m2
58.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2024
Brunabótamat
0
Fasteignamat
26.250.000
Opið hús: 22. október 2024 kl. 17:00 til 17:30.

Opið hús mánudaginn 22. október 2024 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

*** HLUTDEILDARLÁN! - BÓKIÐ SKOÐUN - SÝNUM SAMDÆGURS! ***

Heimili fasteignasala kynnir til sölu nýjar og glæsilegar fullbúnar tveggja, þriggja og fjögurra herbergja íbúðir í fimm hæða staðsteyptu álklæddu lyftuhúsi við Suðurhellu 14 í Hafnarfirði. Allar íbúðirnar afhendast fullbúnar með vönduðum innréttingum frá Axis og gólfefnum frá Birgisson.     
              
Nánari lýsing. 
Íbúð 0403 er 76,3 fm tveggja herbergja íbúð á 4.hæð og skiptist í anddyri, svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og stofu með útgengi á skjólgóðar svalir með útsýni yfir hraunið.

​​​​
Anddyri: rúmgóður fataskápur (eik) og parket á gólfi. 
Borð- og setustofa: í opnu rými með eldhúsi, parket á gólfi og útgengi á svalir. 
Eldhús: sérsmíðuð innrétting frá Axis, góð vinnuaðstaða, ofn, helluborð og gufugleypir frá Ormsson og blöndunartæki frá Tengi. 
Svefnherbergi: rúmgott með fataskáp, á gólfi er parket. 
Baðherbergi: innréttingar frá Axis, vegghengt salerni, blöndunartæki frá Tengi. Á gólfi og á veggjum við sturtu eru flísar frá Birgisson. Stæði fyrir þvottavél/þurrkara.
Sameign: Sérgeymsla íbúðar er á fyrstu hæð sem og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.  

Húsið stendur á horni Suðurhellu og Krísuvíkurvegar og markast af ósnortnu landi til suðurs og vesturs þar sem íbúðum á jarðhæð fylgja afmarkaðir sérafnotafletir og íbúar í íbúðum efri hæða geta notið fallegs útsýnis yfir hraunið. Gróðursett verður meðfram allri lóðinni með lágvöxnum runnum, einnig verða ker á lóðinni með sígrænum plöntum. Fyrir framan hús verða bílastæði og á bak við hús verður sameiginlegur garður með leiktækjum.

Fallegar og vel skipulagðar íbúðir í nýju fjölbýlishúsi í nágrenni við fallega náttúru. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu verkefnis www.sudurhella.is 

Fyrir frekari upplýsingar og skoðanir hafið samband við:
Gunnlaugur A. Björnsson lgf., [email protected], 617-5161 
Anna Sigurðardóttir lgf., [email protected], 898-2017  
Sigríður Lind Eyglóardóttir lgf., [email protected], 899-4703 
Brynjólfur Snorrason lgf., [email protected], 896-2953 


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.