Heimili fasteignasala og Anna Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu glæsilegt og fjölskylduvænt 271,4 fermetra steypt raðhús á þremur hæðum með innbyggðum bílskúr á eftirsóttum stað í Árbæjarhverfinu við Rauðás 4, 110 Reykjavík. Skjólgóður garður með rúmgóðri timburverönd, fallegum trjágróðri og grasbletti. Nánari lýsing fyrsta hæð:Forstofa: Rúmgóð flísalögð lokuð forstofa þaðan sem innangengt er í bílskúr sem er 21,8 fm, sérlega rúmgott þvottahús með glugga, gestasnyrting með vaski og wc, flísar á gólfi og upp á miðja veggi.
Hol, stofa og eldhús: Sérlega glæsileg og björt stofa og borðstofa með stórum gluggum í vestur sem hleypa fallegri birtu inn í rýmið, úr stofu er út gengi á skjólgóða timburverönd og grasblett. Í eldhúsi er vönduð sérsmíðuð hvít eldri innrétting, gas eldavél, hvítur háfur, bakarofn í vinnuhæð, steinn á borðum og flísar á milli skápa. Parket á gólfum.
Nánari lýsing efri hæð:Gengið úr holi upp bjartan og fallegan parketlagðan steyptan stiga með veglegu viðar handriði upp á efri hæðina. Efri hæðin sem er með parketi á gólfum utan baðherbergis skiptist í 4 mjög rúmgóð svefnherbergi, loftin klædd fallegum viðar panel, fataherbergi og glæsilegt baðherbergi með herbergi inn af þar sem gert er ráð fyrir sauna en er nýtt sem geymsla í dag.
Hjónaherbergið og svefnherbergin: Sérlega björt og rúmgóð, hátt til lofts og út gengi á vestursvalir með fallegu útsýni úr tveimur þeirra.
Baðherbergi: Endurnýjað 2018, sérlega glæsilegt, flísalagt bæði gólf og veggir, falleg baðinnrétting, wc og baðkar og sturta.
Rishæðin:Af efri hæðinni liggur timburstigi upp í risið sem er afar rúmgott og skemmtilegt. Stórir þakgluggar veita fallega birtu inn í rýmið sem nýtt er í dag sem fjölskylduherbergi en býður upp á marga möguleika
Hús að utan: Að sögn eigenda hefur húsið hefur fengið mjög gott viðhald í gegnum árin. 2008 - 2009 var farið yfir allt húsið að utan, skipt um glugga og pósta og skipt um þakjárn og pappa. Gluggar utandyra hafa verið málaðir reglulega. Lóðin er frágengin með hellulögn fyrir framan hús og rúmgóðum sólpalli á baklóð ásamt grasbletti með fallegum trjágróðri.
Hér er um að ræða eftirtektarverða eign í fjölskylduvænu og eftirsóttu hverfi í næsta nágrenni við vinsæl útivistarsvæði, fallegar göngu- og hjólaleiðir ásamt öflugu skóla- og íþróttastarfi.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Anna Sigurðardóttir lgf. S. 898-2017 / netfang [email protected]
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.