Heimili fasteignasala kynnir fallega og vel skipulagða 103,3 fm 4ra. herbergja endaíbúð á 3. hæð með sérinngangi frá svalagangi. Húsið er nýlegt 3ja. hæða lyftuhúsi (byggt 2021). Allar innréttingar frá HTH og eru gólf harðparket- og flísalögð. Mjög rúmgóðar suðvestur svalir. !!! LAUS VIÐ KAUPSAMNING !!!Frekari upplýsingar Gunnlaugur A. Björnsson. Lögg. fasteignasali. Sími: 617 5161 eða [email protected]Eignin skiptist : Anddyri, stofu og eldhús í opnu alrými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og geymslu í sameign.
Nánari lýsing :Forstofa: Frá svalagangi er komið í flísalagða forstofu með fataskáp.
Eldhús: Falleg hvít innrétting frá HTH. Ofn í vinnuhæð og innbyggð uppþvottavél (fylgir).
Stofa: Parketlögð og björt gluggar á tvo vegu, með útgang út á stórar suðvestur svalir.
Baðherbergi: Flísalagt að hluta, hvít innrétting, innbyggt salerni, handklæða ofn og “labb-inn” sturta. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu.
Hjónaherbergi: Bjart og rúmgott með stórum fataskáp, harðparket á gólfi.
Herbergi I: Bjart og gott herbergi með fataskáp, harðparket á gólfi.
Herbergi II: Bjart og gott herbergi með fataskáp harðparket á gólfi.
Svalir: Mjög rúmgóðar 15,7 fm. svalir til suðvesturs. Gengið á svalir frá stofu. Tréflísar á svölum.
Geymsla: Á geymslugangi í sameign er sér geymsla fyrir íbúðina.
Húsið er staðsteypt og klætt að utan með bárujárnsklæðningu.
Gluggar eru úr áli að utan og timbri að innan, timbur/álgluggar frá Byko.
Svalagangar eru vindvarðir með samlímdu öryggisgleri.
Lóð: Snyrtileg lóð með bílastæðum og grasflöt.
Falleg og vel skipulögð íbúð í nýlegu fjölbýlishúsi með lyftu í göngufæri við nýja leik- og grunnskóla.
Stapaskóli er í 500m fjarlægð þar sem starfræktur er leikskóli, grunnskóli, tónlistarskóli, frístundaskóli og félagsmiðstöð. Þar er jafnframt íþróttahús, sundlaug og bókasafn.
Akurskóli er í svipaðri fjarlægð í andstæða átt við Stapaskóla og þar er líka leikskólinn Akur.
Stutt í þjónustukjarna með matvöruverslunum, apóteki og fleiru.
Frekari upplýsingar Gunnlaugur A. Björnsson. Lögg. fasteignasali. Sími: 617 5161 eða [email protected]
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.