Suðurhella 12 íb. 301, 221 Hafnarfjörður
85.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
4 herb.
122 m2
85.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
2024
Brunabótamat
0
Fasteignamat
5.710.000

Heimili fasteignasala kynnir til sölu nýjar og glæsilegar fullbúnar tveggja, þriggja og fjögurra herbergja íbúðir í fimm hæða staðsteyptu álklæddu lyftuhúsi við Suðurhellu 12 í Hafnarfirði. Íbúðirnar afhendast með innréttingum og gólfefnum verða tilbúnar til afhendingar í lok oktober 2024. Allar íbúðir afhendast með innréttingum og skápum frá Axis, gólfefni frá Birgisson og full frágenginni sameiginlegri lóð með leiktækjum á bak við hús. 

Íbúð 0301 er 122,4 m² fjögurra til fimm herbergja íbúð á þriðju hæð sem skiptist í anddyri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús og stofu með útgengi á rúmgóðar svalir með útsýni yfir hraunið og til fjalla. Möguleiki er að útbúa fjórða svefnherbergi eignar úr hluta af stofu. Sjá nánar skilalýsingu og/eða á www.sudurhella.is/heimili.is

Fyrir nánari upplýsingar og skoðun hafið samband við Gunnlaug, lgfs., s:617-5161 [email protected]

Nánari lýsing.
Anddyri: sérinngangur frá svalagangi, rúmgóður fataskápur (eik) og parket á gólfi.
Borð- og setustofa: í opnu rými með eldhúsi, parket á gólfi og útgengi á svalir eignar. Mögulegt er að útbúa fjórða svefnherbergi úr hluta af stofu.
Eldhús: sérsmíðuð innrétting frá Axis, góð vinnuaðstaða, ofn, helluborð og gufugleypir frá Ormsson og blöndunartæki frá Tengi.
Svefnherbergi: eru öll rúmgóð og með fataskápum. Á gólfi er parket.
Baðherbergi: innréttingar frá Axis, vegghengt WC, blöndunartæki frá Tengi. Á gólfi og á veggjum við sturtu eru 60x60 flísar frá Birgisson.
Þvottahús: í sér rými innan íbúðar, flísar á gólfi.
Sameign: sérgeymsla íbúðar (merkt 0109) er á fyrstu hæð sem og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.  Í húsinu er loftskiptikerfi (Systemair Save VTR 275) frá Blikksmiðnum hf.

Húsið stendur á horni Suðurhellu og Krísuvíkurvegar og markast af ósnortnu landi til suðurs og vesturs þar sem íbúðum á jarðhæð fylgja afmarkaðir sérafnotafletir og íbúar í íbúðum efri hæða geta notið fallegs útsýnis til fjalla. Gróðursett verður með fram allri lóðinni með lágvöxnum runnum, einnig verða ker á lóðinni með sígrænum plöntum. Fyrir framan hús verða bílastæði og á bak við hús verður sameiginlegur garður með leiktækjum. 

Fallegar og vel skipulagðar íbúðir í nýrri lyftublokk með útsýni til fjalla og í nágrenni við fallega náttúru.  
 
Fyrir nánari upplýsingar og skoðanir hafið samband við: 


Gunnlaugur A. Björnsson lgf., [email protected], 617-5161
Brynjólfur Snorrason lgf., [email protected], 896-2953
Anna Sigurðardóttir lgf., [email protected], 898-2017
Sigríður Lind Eyglóardóttir lgf., [email protected], 899-4703


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.