Hraunbær 103, 110 Reykjavík (Árbær)
79.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
2 herb.
112 m2
79.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1990
Brunabótamat
48.900.000
Fasteignamat
67.050.000

*** ÍBÚÐIN ER SELD •••

Erum með fólk á skrá, sem leitar að heppilegri eign fyrir eldri borgara.  
Nánari uppl. í síma 774 7373 eða [email protected]
- Kannski eru tækifærin skammt undan!


Heimili fasteignasala kynnir ákaflega fallega, bjarta og vel skipulagða 87,5 fm tveggjaa herb. útsýnisíbúð á 7. hæð, auk 24,5 fm bílskúr í þessu vinsæla húsi ætlað 60 ára og eldri.  Nýtt dyrasímakerfi með myndavél. Gluggar á þrjá vegu, sólríkar yfirbyggðar suður svalir og frelsandi útsýni sem gefur eigninni aukið gildi.  Góð sameign og sterkt húsfélag.  Í þjónustumiðstöð Reykjavíkurborgar, á jarðhæð hússins, er boðið er upp á mat, félagstarf og ýmsa þjónustu. 

Lýsing eignar: 
Gangur/hol: Parket/flísar á gólfi og góður fataskápur.
Eldhús:  Parket á gólfi, viðar innrétting og góðir gluggar.
Stofa/borðstofa: Er rúmgóð og björt með glugga á tvo vegu og fallegu útsýni.  Þaðan gengið út á yfirbyggðar suður svalir.
Hjónaherbergi:  Rúmgott með parketi á gólfi og góðum fataskápum. 
Baðherbergi:  Dúkur er á gólfi en flísar á veggjum. Hvít innrétting og sturtuklefi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.  Gengið er inn í þvottahús / baðherbergi úr holi og einnig úr svefnherbergi.
Innaf svefnherberginu er lítið herbergi sem mætti nota sem geymslu, fataherbergi, bókaherbergi eða föndurherbergi. Jafnframt er lítið geymslurými í sameign. 
Bílskúr 24,5 fm er í bílskúralengju við húsið.  Heitt- og kalt vatn, frárennsli og rafdrifin hurð. 

Íbúðin er ætluð 60 ára og eldri.
Hér er tækifæri til að koma sér vel fyrir og njóta félagslífs, fjölbreyttrar þjónustu og nálægðar við góðar gönguleiðir Elliðaárdalsins. 
Nánari upplýsingar veitir Ragnar Þorgeirsson, löggiltur fasteignasali, í síma 774 7373 eða [email protected]


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.