Suðurhella 12, 221 Hafnarfjörður
58.000.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
2 herb.
76 m2
58.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2024
Brunabótamat
43.000.000
Fasteignamat
57.150.000

Heimili fasteignasala  kynnir til sölu fullbúnar nýjar og glæsilegar 2ja til 4ra herbergja íbúðir í fimm hæða staðsteyptu álklæddu lyftuhúsi við Suðurhellu 12 í Hafnarfirði.  Íbúðirnar verða tilbúnar til afhendingar í lok október 2024. 

ATH! Hægt er að sækja um hlutdeildarlán á þessa eign! Frábær fyrstu kaup. Nánari upplýsingar veitir Anna s: 898-2017 

Nánari lýsing.

íbúð 0403 er falleg og vel skipulögð 76,3 fm tveggja herbergja íbúð á fjórðu hæð þar sem komið er inn í rúmgott anddyri með parketi á gólfi og fataskáp. Inn af anddyri er rúmgott hjónaherbergi með stórum fataskápum og frá anddyri er gengið inn í stórt og bjart opið rými þar sem er eldhús og stofa. Í eldhúsi er sérsmíðuð innrétting frá Axis með góðri vinnuaðstöðu, miklu skápaplássi og tækjum frá Ormsson. Stofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi og útgengi á góðar suður svalir eignar. Baðherbergi með sérsmíðaðri innréttingu frá Axis, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, handklæðaofni, blöndunartækjum frá Tengi, og flísalögðum sturtuklefa sem er afmarkaður með glerskilrúmi. Á gólfi og á veggjum við sturtu eru flísar. Í íbúðinni er sérstakt loftræstikerfi sem skilar fersku og síðuðu lofti inn í íbúðina. Eigninni fylgir sérgeymsla í kjallara, sameiginlegur garður bakatil og sameiginleg bílastæði fyrir framan hús þar sem gert hefur verið ráð fyrir rafhleðslustöðvum. 

Húsið er staðsteypt og álklætt og markast af ósnortnu landi til suðurs og vesturs þar sem íbúar í íbúðum efri hæða geta notið útsýnis yfir hraunið og til fjalla. Gróðursett verður með fram allri lóðinni með lágvöxnum runnum, einnig verða ker á lóðinni með sígrænum plöntum. 

Falleg, rúmgóð og vel skipulögð íbúð í nýju lyftuhúsi í nágrenni við fallega náttúru.  

Nánari upplýsingar veita:  
Anna Sigurðardóttir lgf., [email protected], 898-2017 
Gunnlaugur A. Björnsson lgf., [email protected], 617-5161 
Sigríður Lind Eyglóardóttir lgf., [email protected], 899-4703 
Brynjólfur Snorrason lgf., [email protected], 896-2953 



 


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.