Grensásvegur 12, 108 Reykjavík (Austurbær)
57.500.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
2 herb.
60 m2
57.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1968
Brunabótamat
32.200.000
Fasteignamat
50.950.000

Heimili fasteignasala  og Ragnar Þorgeirsson, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu einstaklega smart 60,8 fm. íbúð á efstu hæð í lyftuhúsi við Grensásveg 12. Húsið var endurnýjað og hæðin byggð ofaná það árið 2021. Svalir og gluggar snúa í vestur og því ekki ónæði frá götu.

Íbúðin skiptist í rúmgott alrými, svefnherbergi og baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.  Geymsla er innan íbúðar og nýtt sem barnaherbergi.  Gott skápapláss í anddyri og alrými. 

Forstofa: Í opnu rými, góður fataskápur. Mynd dyrasími.
Eldhús: Falleg dökk innrétting og innbyggður ískápur. 
Stofa: Björt með stórum gluggum og þaðan gengið út á svalir.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, innrétting, speglaskápur, sturta með glerskilrúmi, upphengt salerni og handklæðaofn. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. 
Svefnherbergi: Góðir gluggar og rennihurð. 
Harðparket á gólfum, nema á baðherbergi sem er flísalagt.
 
Húsið var áður verslunar- og skrifstofubygging en tekið í notkun eftir endurgerð árið 2021.  Góðar sameiginlegar austursvalir eru á hæðinni og næg bílastæði á baklóð hússins. Vinsæl staðsetning í göngufæri við alla helstu þjónustu s.s. verslanir, veitingahús og almenningssamgöngur í vaxandi hverfi miðsvæðis í borginni. Örstutt í Laugardalinn, eitt vinsælasta útivistarsvæði Reykvíkinga.

Nánari upplýsingar veitir Ragnar Þorgeirsson, löggiltur fasteignasali í síma 774 7373 eða [email protected]


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.