Flyðrugrandi 4, 107 Reykjavík (Vesturbær)
55.900.000 Kr.
Fjölbýli
2 herb.
65 m2
55.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1978
Brunabótamat
30.000.000
Fasteignamat
61.400.000

Heimili fasteignasala kynnir í einkasölu:  Flyðrugrandi 4, vel skipulögð 2ja herbergja íbúð með stórum suðvestur svölum. Frábær staðsetning í Vesturbænum.

Allar frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson, fasteignasali, [email protected]

Eignin er seld.


Komið er inn á anddyri/hol með nýlegu parketi og fataskáp. Björt og rúmgóð stofa og borðstofa með nýlegu parketi, gengið út á stórar suðvestur svalir með fallegu útsýni að KR svæðinu. Eldhúsið er opið við stofuna, ágæt viðarinnrétting og nýlegt parket á gólfi. Stórt svefnherbergi með nýlegu parketi, rúmgóðir fataskápar. Ágætt vinnurými með parketi er fyrir framan svefnherbergið. Baðherbergi með flísum á gólfi og á veggjum, baðkar, nýlegur vaskur, salerni og blöndunartæki. Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni sem fimm íbúðir deila, sameiginleg tæki og sérskápur fyrir hverja íbúð. Sérgeymsla íbúðar er í sameign, (merkt B3-4) í kjallara ásamt hjóla- og vagnageymslu. Á þaki hússins er gufbaðsklefi og sturtuaðstaða.

Húsið var múrviðgert og málað að utanverðu fyrir fáeinum árum (framkvæmdum lauk 2017) og gluggar/gler endurnýjaðir þar sem þörf var á 2018. Einnig voru svalir flotaðar og málaðar.  EFLA verkfræðistofa sá um eftirlit framkvæmda. Búið er að leggja tengi fyrir rafmagnsbíla fyrir framan og aftan húsið. Þótt íbúðin sé skráð á 3ju hæð er aðeins gengið upp eina hæð að framanverðu inn í íbúðina.

Allar frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson, fasteignasali, [email protected]


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni í 20 ár.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.