Lyngmói 4, 800 Selfoss
79.900.000 Kr.
Parhús
4 herb.
166 m2
79.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2004
Brunabótamat
54.900.000
Fasteignamat
75.200.000

*** HÚSIÐ ER SELT  *** 
Þetta glæsilega parhús er selt.  Bókið frítt verðmat  á ykkar fasteign í síma 898-2017 eða [email protected]


Glæsilegt parhús  í vinsælu hverfi á Selfossi.
Heimili fasteignasala kynnir í einkasölu glæsilegt,  fjölskylduvænt 166,8 fermetra parhús úr timbri, auk 17 fermetra sólstofu,  klætt með viðhaldsfríum múrsteini.  Húsið er á einni hæð með innbyggðum bílskúr við Lyngmóa 4 á Selfossi.  Rúmgóð innkeyrsla, skjólgóður og fallegur garður með gróðurhúsi, sólstofa með rennihurð út á  stóran sólríkum afgirtan viðarpall með heitum potti.  Húsið er vel staðsett í rólegum botnlanga og stendur á 1248 fm lóð. 

Vinsamlega bókið skoðun hjá Önnu Sigurðardóttur, löggiltum fasteignasala, sími 898-2017 netfang [email protected]

Nánari lýsing:
Forstofa: Með góðum fataskáp og fallegum náttúru steinflísum á gólfi.
Forstofuherbergi:  Bjart og rúmgott herbergi með náttúru steinflísum á gólfi.
Eldhús: Er sérlega glæsilegt í opnu rými með stórum gluggum sem hleypa fallegri birtu inn, hátt til lofts og innfelld lýsing.  Vönduð innrétting, flísalagt á milli skápa, ofn í vinnuhæð, spanhelluborð og háfur.
Stofa/sólskáli:  Er í opnu rými með eldhúsi,  fallegar náttúru steinflísar á gólfi.  Hátt til lofts og innfelld lýsing.  Út gengi úr stofu í rúmgóðan 17 fermetra sólskála sem er ekki inn í birtri stærð hússins, hiti í gólfi  og falleg óbein lýsing.  Úr sólskála er tvöföld rennihurð og út gengi á skjólgóðan afgirtan sólpall með heitum potti og miklu rými fyrir útihúsgögn og leiktæki.
Hjónaherbergið:  Hjónaherbergið er bjart og fallegt, rúmgott með góðum  fataskáp, innbyggð lýsing í lofti og náttúru steinflísar á gólfi.
Barnaherbergi:  Rúmgott barnaherbergi með fataskáp, gluggi snýr út í bakgarð náttúru steinflísar á gólfi.
Baðherbergi: Bjart og fallegt baðherbergi  með glugga, flísalagt gólf og upp á veggi, glæsileg  baðinnrétting, wc og walk in sturta.
Þvottaherbergi: Með náttúru steinflísum á gólfi, góð innrétting, vinnuborð og vaskur. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Út gengi í bakgarð.
Bílskúr: Er innbyggður  með nægu plássi fyrir vinnuaðstöðu og geymslulofti, stærð 30 fm.  Innangengt er í bílskúr úr íbúð og því einfalt að setja upp aukaherbergi eða stúdíó íbúð.  Bílskúrshurð með fjarstýrðum hurðaopnara.   Inngönguhurð og gluggi við aðalinngang hússins. Malbikuð stór innkeyrsla.   
 
Hér er um að ræða glæsilegt parhús á einni hæð með fallegum viðhaldsfríum múrsteini og skemmtilegri lóð þar sem auðvelt er að njóta lífsins.  Eignin er staðsett í lokuðum botnlanga  í rólegu umhverfi í ört stækkandi metnaðarfullu bæjarfélagi, örstutt í alla þjónustu og í göngufæri við miðbæ Selfoss, veitingahús og verslanir, sundlaug, íþróttastarf og allt það frábæra sem Selfoss hefur upp á að bjóða.  Sjón er sögu ríkari

Til fróðleiks:
Miðbær Selfoss er staður sem brúar gamalt og nýtt.  Þar gefur að líta fjölda húsa sem eiga sér fyrirmyndir í löngu horfnum íslenskum byggingum.   Þar má meðal annars finna úrval verslana og veitingastaða í endurbyggðum íslenskum húsum, í heillandi umhverfi skammt frá bökkum Ölfusár.


 


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni í 20 ár.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.